Prófíll

  • Nafn: Sólbjörg Björnsdóttir
  • Stađur: Reykjavík
  • Atvinna: tónlistarnemi
  • Hjúskaparstađa: mjög góđ :)
  • Um mig: Ég er syngjandi glöđ og kát stúlka í tónlistarnámi í listaháskólanum.
  • Annađ: jájá allt annađ og ýmislegt fleira... :)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

yndislegasta fólk í heimi:)

Könnun

Hvađ finnst ţér best ađ booorđa??

Innskráningar kubbur

Leikur dagsins

Leit

I say a little prayer for you ;o)

29. maí 2007 klukkan 11:32

Svona til gamans þá ætla ég bara að smella inn nokkrum litlum saklausum brandörum ;)


Þjónninn: Jæja, í dag er ég með reykta tungu, steikta lifur, nýru í kássu og grísalappir. Gesturinn: Ég var ekki að spyrja um heilsufar þitt.

Hún Stína litla...

... er svo grönn að í hvert skipti sem hún fer niður að Tjörn kasta endurnar brauði í hana.

 

Fíll og mús voru á leið yfir brú.

Fíllinn: Mikið svakalega brakar í brúnni. Ég held hún sé hreinlega að detta í sundur.

Músin: Það er nú engin furða þegar við erum bæði á henni í einu.


Lögga stoppaði ljóskuna sem ók á móti umferðinni á einstefnugötu.

Löggan: "Sástu ekki örvarnar?"

Ljóskan: "Ég sá ekki einu sinni Indjánana."


Alright.. Kannski maður skelli líka inn nýrri könnun fyrst kosningarnar eru LÖNGU búnar ;-)

Sumarást!!

Sólbjörg Björnsdóttir
Engin athugasemd

Kosningar smosningar

14. maí 2007 klukkan 18:24
döjöfullinn!!!

Mér finnst fólk hefði átt að nota frekar mína könnun hérna við hliðiná í þessum kosningum!!! ;o)

..Þó ekki hefði verið nema bara að fá Samfylkinguna inn!

fussum sveijj.....
Sólbjörg Björnsdóttir
3 athugasemdir

Aus der Notenbibliotek

09. maí 2007 klukkan 11:30
Held það sé kominn tími á nýja könnun..!!

Ákvað að smella inn einni um kosningarnar svona í tilefni umræðunnar í þjóðfélaginu.. 

Annars er það að frétta af mér að ég er alveg að komast á lokasprettinn með BA-ritgerðina.. Við fengum öll frest fram á mánudag svo ég veit ekki alveg hvort öll mín loforð um allsvaðalegt djamm um helginu muni standast! En ég er nú allavega búin að lofa mér í grill á fimmtudaginn sem ég ætla ekki að svíkja..

Og ég mun aldrei láta mig vanta þegar verið er að tala um tvöfalda afmæli hjá sætustu systrunum.. Þó maður sötri kannski bara 2-3 öllara og fari svo heim í háttinn áður en allir fara í bæinn...

Það er alltaf gott að fá meiri tíma til að gera hlutina betur en mig bara langaði svoo mikið til að djamma um helgina! Enda ALLT að gerast þetta umrædda laugardagskvöld!! ......og hversu langt er maður leiddur þegar maður er meiraðsegja farinn að hlakka til að vera þunnur daginn eftir.. hehe!! ..hef ekki átt þynnkudag í allt of marga mánuði...

Og hér með LOFA ég ykkur því að ég SKAL sko að vera ógeeeðslega þunn 3. júní!!!!!!! 

 ;oP
Sólbjörg Björnsdóttir
4 athugasemdir

good old times

08. maí 2007 klukkan 15:38
hahaha... ohh já Sigrún.. Það væri sko geggjað.. Mig langar að vera aftur 15!!! :oD 

Ég og einn vinur minn tókum meira að segja upp á því einn daginn að loka okkur saman inn á klósetti.. Þurftum eitthvað rosalega mikið að tala saman um hluti sem komu nú ekkert öllum á svæðinu við. En fólk skyldi ekki þetta ástand og hvað þá að tvær manneskjur af sitt hvoru kyninu myndu loka sig saman inn á klósetti.. BARA til að "tala"!! Þetta olli að sjálfsögðu miklum misskilningi og margir héldu að frá og með þessari stundu værum við orðin par ..eða allavega búin að kela!  Sem var nú frekar stórt skref í þá dagana...

Við vorum á allra vörum og þurftum að koma okkur út úr þessari aðstöðu... ..Þannig að við gripum til þess ráðs að segja í að ég hefði rakað á honum punginn til að komast frá því að við hefðum verið eitthvað "saman" þarna inni á baðherberginu.. Ég man ekki alveg hvort okkar átti hugmyndina að þessu snjallræði en slúðrið varð hinsvegar ekkert minna!! 

Nokkrum dögum síðar var síðan ákveðið að hópurinn færi allur saman í sund og fór þá félagi minn auðvitað í karlaklefann... Þegar síðan kom að því að hann ætlaði að klæða sig í sundskýluna sína þá biðu allir gaurarnir í ofvæni eftir því að hann færi úr nærunum til að sjá hvort við værum í rauninni að segja satt!!

Það endaði með því hann forðaði sér inn á bað og fór í sundskýluna þar.. þannig að sannleikurinn kom aldrei í ljós!!




Sólbjörg Björnsdóttir
3 athugasemdir

hahaha... Extra menthol sugarfree gum!

05. maí 2007 klukkan 19:49
úff... ég gramsaði upp ljóð sem var samið um mig í sumarbúðum eitt árið af nokkrum vinum mínum og þeir sungu á kvöldvöku.. hehe.. 

Dreymir (sungið við lag e. Land og syni)

Halló, þú, stelpa sem leiddir mig,
elskar þú mig -eins og ég þig?
Viltu halda utan um mig..

Hvað, heitir þú ..annars?
AHA! Já ég man! 
Sólin mín!! Eeeelskan mín!

Heheyy!! Sóóóla.. 
Oó Sóla.. hvaað dreymir þig..
(Viltu mig) Því mig DreHeimir
bara þig!!!

Ég vil far'úr fötunum
farðu lík'úr fötunum
opinn fyrir huumyndum....


Svo var viðlagið endurtekið.. Það skal tekið fram að það var ekki Heimir sem samdi þennan texta og það var aldrei nein rómantík á milli okkar!!
ég man ekki hvort strákarnir lentu í einhverjum vandræðum út af þessum síðasta parti.. en þetta var allavega mjög fyndið!!

Anyways þá gerðist nú ýmislegt í sumarbúðunum þetta sumarið.. ótrúlegt hvað getur margt gerst á einni viku :)

Mér tókst að fá fyrsta sólbrunann minn.. 

Láta kasta mér í vatnið aftur og aftur og aftur og aftur, 

við gerðum gervi "lolla" úr snickersi sem hafði af einhverjum undarlegum ástæðum bráðnað á ofni og var óþægilega raunverulegur í sínu hlutverki.. 

Finna 30 og eitthvað, næstum 40 orð yfir mannaskít..

Eignast besta vin í heiminum 

..verða hrifin af strák, skot sem entist meira að segja frekar lengi!! 

..laumast út á nóttunni til að segja draugasögur í íþróttahúsinu!

Raka hárið af hausnum á frænda mínum ...og raka + lita íslenska fánann á hausinn á öðrum gæja í hárgreiðslukeppni!!

þykjast, ásamt vinkonu minni, geta talað rússnesku og fólk actually trúði okkur!

Borða óhóflega mikið af grænum hlunkum 

fara af sjálfsdáðum í kapellu til að biðja..

oooog stofna the Kool Kids Krew (eða KKK) ásamt aðal crewinu á svæðinu

jájá og ýmislegt fleira sem ekki verður nefnt hér sökum siðgæðismarka!

HAHAHAhahaha.... ;o)


These were the good old times ;oD
Sólbjörg Björnsdóttir
1 athugasemd

var ţetta bara tilviljun??

03. maí 2007 klukkan 14:10

A novel that predicted the Titanic's destiny, and another ship that almost followed
Morgan Robertson, in 1898, wrote "Futility". It described the maiden voyage of a transatlantic luxury liner named the Titan. Although it was touted as being unsinkable, it strikes an iceberg and sinks with much loss of life. In 1912 the Titanic, a transatlantic luxury liner widely touted as unsinkable strikes an iceberg and sinks with great loss of life on her maiden voyage. In the Book, the Month of the Wreck was April, same as in the real event. There were 3,000 passengers on the book; in reality, 2,207. In the Book, there were 24 Lifeboats; in reality, 20.
Months after the Titanic sank, a tramp steamer was traveling through the foggy Atlantic with only a young boy on watch. It came into his head that it had been thereabouts that the Titanic had sunk, and he was suddenly terrified by the thought of the name of his ship - the Titanian. Panic-stricken, he sounded the warning. The ship stopped, just in time: a huge iceberg loomed out of the fog directly in their path. The Titanian was saved. 
Sólbjörg Björnsdóttir
1 athugasemd