Sććććll!!!
6 athugasemdir

Góðan daginn!! Í dag er sko góður dagur ;) Ég er í fríi í dag!!
Ég var ekki enn búin að jafna mig eftir síðasta frí sem var um helgina og var CRAZY skemmtilegt!! Hérna kemur helgin mín ;)
Ég fór í innflutningspartý til Ástýjar og Ernu á föstudeginum þar sem allir voru í góðum sköpum!!! ;o) Helga María var diskókúla og Auðurinn mín var eiginmannslaus og sýndi fram á að það er sko vel hægt að skemmta sér án þeirra!! Við enduðum á Kultura þar sem Þórunn sýndi okkur sannarlega hvað í henni býr, Raggi og Benni lentu í svaðalegum samræðum um Húsavíkurálverið og Erna og Ingibjörg voru kátustu pæjurnar á svæðinu!..
Á laugardaginn var síðan staffapartý með Hann og Hún á Hótel Rangá!! Við fengum fimm rétta villibráðarmáltíð og það var NUDDBAÐKAR inná hótelherberginu! Þetta var geggjað vel heppnuð ferð og ég skemmti mér konunglega!! Það var meiraðsegja farið í heitan pott kl 3 um nóttina með Pina Colada!!! Æði pæði ;)
Við vöknuðum svo kl hálf 11 í þynnkunni og fengum okkur morgunmat með ofurhressu vinnufélögunum hans Ragga, sem höfðu þá líka kynnst henni þynnku.. hehe...
Við brunuðum beint á Akranes og kíktum í kaffi til ömmu og afa og fórum líka í heimsókn til Siggu ömmusystur og Braga mannsins hennar.. Um kvöldið fór ég síðan í ammæli til hennar Kristínar og fékk hitti fleira hresst fólk þar sem við fengum eðal fínt kjúklingapasta og slúðruðum meðal annars um Unni Birnu og ýmislegt fleira skemmtilegt :o)
Jæjja.. þá hafiði það ;)
Bless kless!!!



Hérna er hún með vinkonu sinni að austan.. Hún fór að vinna á Hótel Eddu á Eiðum í sumar og skemmti sér víst alveg svakalega vel!!! :) Enda er það lífsreynsla sem mér finnst að allir ættu að prófa..
Svo er hinn litli frændinn minn, Logi Steinn, að komast á svo ótrúlega skemmtilegan aldur.. ÞAð er 15. mánuður ævinnar að ganga í garð.. Jamm er algjör grallari og alltaf í boltanum eins og stóri bróðir sinn!! og líka rosa skemmtilegur strákur.. Hann er reyndar soldið feiminn, en um leið og maður kemst yfir skelina þá er hann einn sá mesti snillingur sem ég hef hitt!! og ALLTAF í fótbolta eins og bróðir sinn..
Það er ótrúlega sætt, enda boltinn aðeins stærri hlutfallslega fyrir hann en okkur hin..


FULLNÆGIR k0num í
HVERT SKIPTI
.
.
.
Hjónakornin Jón og Gunna voru komin af léttasta skeiði en voru mjög virk í kynlífinu eftir sem áður.
Eitt sinn sem oftar voru þau upp í rúmi, létu vel hvort að öðru og stefndu á að eiga mjög góða stund saman. Þegar Gunna hvíslar munúðarfullt í eyra Jóns verður hún furðulostin þegar hann rýkur upp úr rúminu. Karlinn grípur haglabyssuna og æðir út. Þar stendur hann á sprellanum og miðar upp á þak.
Hvern andskotann er karluglan að bardúsa núna hugsar Gunna ergileg. Hún æpir á hann og spyr hvern fjandann hann sé að gera.
Jón æpti á móti: þú sagðir að það væri rjúpa á þakinu
NEI, gargaði Gunna á móti: ÉG SPURÐI HVORT ÉG ÆTTI AÐ KRJÚPA EÐA VERA Á BAKINU!!
HAHAHA..... :-D